Ég er gift Unnari Rafni Ingvarssyni sagnfræðingi. Við eigum tvær dætur, Sigríði fædda 1995 og Aldísi Ósk fædda 1997. Fjölskyldan býr á Sauðárkróki.
1. Námsferill
2009 M.Ed.- próf frá Háskóli Íslands, Menntavísindasvið, Uppeldis-og menntunarfræði. Heiti lokarannsóknar: Menntun til sóknar á háskólastigi á Norðurlandi vestra. Rannsókn á viðhorfum íbúa á Norðurlandi vestra 19-60 ára til háskólanáms. Sjá meistararannsókn í skemmu Háskóla Íslands, Stakkahlíð.
2006 Dipl.Ed.- próf í uppeldis og menntunarfræði með áherslu á kennslufræði og skólastarf frá Kennaraháskóla Íslands.
1994 Próf í uppeldis- og kennslufræðum til kennsluréttinda bæði á grunn- og framhaldsskólastigi frá Háskóla Íslands. Hef leyfisbréf sem framhaldsskólakennari.
1990 B.Sc próf hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri.
1985 Stúdentspróf frá Verslunarskóla Íslands.
1. Starfsferill
2000 – núverandi dags Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Sauðárkróki
Framhaldsskólakennararéttindi (ásamt grunnskólaréttindum) og hef starfað sem kennari við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra undanfarin 10 ár í fullu starfi. Hef undanfarin ár verið fagstjóri í raungreinum. Kennslugreinar mínar hafa verið Nát 103, Nát 123, Nát 113, Jar 103. Sjú 103 og Nær 103. Hef einnig séð um handleiðslu kennaranema sem hafa sérhæft sig í náttúruvísindakennslu í kennsluréttindanáminu í Háskólanum á Akureyri.
1990 – 2000 B.Sc Hjúkrunarfræðingur Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki
Almennur hjúkrunarfræðingur ásamt því að vera í margskonar fræðslustörfum öll árin þ.a.m sjá um fræðslunámskeið nýrra starfsmanna, sjúklingafræðslu, útgáfu fræðslubæklinga o.s.frv. Kenndi einnig stundakennslu við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki um tíma ásamt hjúkruninni.
2000 – 2003 Háskólinn á Akureyri
Stundakennari við Háskólann á Akureyri á ásamt störfum mínum sem hjúkrunarfræðingur á Sauðárkróki. Var stundakennari í hjúkrunarfræði í áfanganum öldrunarhjúkrun. Sá síðar um þann kúrs sem umsjónarkennari í einn vetur. Hef að baki kennslureynslu á háskólastigi
2000 – 2010 Farskóli Norðurlands vestra Sauðárkróki
Kennt á fjölda námskeiða fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Einnig hef ég kennt námskeið fyrir kennara sem kenna í fjarfundabúnaði.
2. Ritskrá
Námsritgerðir
Nína Þóra Rafnsdóttir 2009. Menntun til sóknar á háskólastigi á Norðurlandi vestra. Rannsókn á viðhorfum íbúa á Norðurlandi vestra 19-60 ára til háskólanáms. Meistararitgerð Háskóli Íslands, Reykjavík.
Námsefni/Fræðslurit
Nína Þóra Rafnsdóttir 2003. Öldrunarhjúkrun. Kennsluhandrit fyrir sjúkraliðanema í fjarnámi frá FNV. Sauðárkróki.
1990 – 2000. Ýmsir fræðslutengdir bæklingar og fræðsluhefði fyrir starfsfólk og sjúklinga á heilbrigðisstofnunum.
Nína Þóra Rafnsdóttir 2009. Námskrágerð fyrir ófaglært fólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Farskóli Norðurlands vestra.
Fyrirlestrar
Nína Þóra Rafnsdóttir 2006. Skipulagning á opinberum fyrirlestrum nemenda í jarðfræðinámi FNV í Náttúrustofustofu Norðurlands vestra í samstarfi við Náttúrustofuna og starfmenn hennar.