Lestur bókmenntaverks

Greinandi lestur

Til að geta tekið afstöðu til bókmenntaverks og skrifað um það áhugaverða ritgerð þarf að lesa verkið vandlega og vera meðvitaður um að góður lestur felur í sér ákveðna rannsókn. Heppilegt er að spyrja spurninga um nokkur mikilvæg atriði.

Nokkrar spurningar sem gagnlegt er að varpa fram: 

Um hvað snýst sagan og hvað er höfundur að segja með henni?

Hver eru grunnátök sögunnar og hvernig þróast þau átök í gegnum söguna?

Hver eru mikilvægustu þemu / umfjöllunarefni sögunnar?

Hver eru helstu skapgerðareinkenni sögupersóna?

Hvað einkennir samskipti persóna? Hvað eiga þær sameiginlegt og hvað ekki?

 

Skrifaðu hjá þér – veldu tilvitnanir

Greinandi lestur krefst þess að hugsað sé um textann á meðan hann er lesinn. Því er gott að punkta jafnóðum hjá sér athyglisverð atriði eða málsgreinar. Það kemur skipulagi á vangavelturnar um söguna og býr einnig til grunn sem sótt er í við ritgerðarskrifin, t.d. til að rökstyðja tilgátu.