Í tilgátunni kemur skýrt fram um hvað þú ætlar að fjalla í ritgerðinni og hvernig þú ætlar að taka á efninu.
Tilgáta skiptist í tvennt:
Fyrri hluti: Efnið sem þú ætlar að skrifa um.
- Samband Gunnars og Hallgerðar…
Seinni hluti: Hvernig þú ætlar að fjalla um efnið, kjarni ritgerðarinnar.
- …byggist á losta og stolti en ekki ást.
Rannsóknarspurning er opin spurning sem býður upp á áhugaverðar vangaveltur.
Dæmi: Á hverju byggist samband Gunnars og Hallgerðar?